Hin árlega og stórskemmtilega hrossaræktarvísindaferð Fáksverja og Limsverja verður farin nk. laugardag (2. mars). Farið verður frá Reiðhöllinni kl. 10:00 í rútu (fargjaldið kr. 4.000) og tvö öflug hrossaræktarbú á Suðurlandi verða heimsótt, enda áttu þau margan gæðinginn á síðasta landsmóti ásamt því að vera höfðingjar heim að sækja.
Þeir sem ætla í ferðina eru beðnir að hafa samband við Helga í síma 698-8370 eða senda póst á fakur@fakur.is fyrir kl. 12:00 á föstudag.
