Tenglar
- Forleikur á Fjórðungsmóti Borgarnesi 2021
- Milljónameri
- Forleikur kynbótasýning Hellu 10.06.2020
- Forleikur Kynbótasýning á Hellu 2020
- Fákur
- Engispretta
- Þóroddsstaðir
- Glaumur frá Geirmundarstöðum
- Kokteill frá Geirmundarstöðum
- HrossVest
- Valtýr frá Sólheimum
- GLYMUR Í ÚTLÖNDUM
- Kveikssonur
- Hryllingsfélagið
- Vegagerðin
- Veðustofan
Eldra efni
- 2026
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2025
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2024
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2023
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2022
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2021
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2020
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2019
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2018
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2017
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2016
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2015
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2014
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2013
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2012
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2011
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2010
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2009
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2008
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
12.02.2010 16:53
Vorferð og aðalfundur Limsfélagsins.
Limsverjar athugið að vorferð og aðalfundur félagsins verður haldin 6. mars n.k
Byrjað verður á aðalfundi og venjulegum aðalfundarstörfum , skýrsla stjórnar
fjármál ofl. Að aðalfundi loknum verður lagt af stað í vorferð og dagskráin verður
fjölbreytt að vanda. m.a. verða Olil og Bergur að Syðri Gegnishólum heimsótt ,Limur verður tekinn út
og komið við á óvæntum stað ef tími leyfir.
Haustferðin var frábær í alla staði og tókst vel og því hvetjum við sem flesta að taka þátt núna.
Drög að dagskrá :
Kl 9:00 Aðalfundur (reiðhöll Víðidal)
Kl 09:30 Brottför (reiðhöll Víðidal)
Kl:17:00 Heimkoma (reiðhöll Víðidal
Þátttökugjald verður svipað og síðast í kringum kr.4.000 ,ræðst af þátttöku .
(Ath hádegisverður er ekki innifalinn í verðinu).
Að þessu sinni verður ferðin farin í samvinnu og samstarfi við Hrossaræktardeild Fáks
og má því búast við góðum hóp og skemmtilegri stemmningu.
Minnum á að kvennakvöld Fáks er haldið þetta sama kvöld og tilvalið að flétta það saman og
skella sér á á ball og tjútta vel um kvöldið með hressum og skemmtilegum Fákskonum.
Vinsamlega látið vita með mætingu sem allra fyrst í síma 698-8370 eða senda tölvupóst á
fakur@simnet.is fyrir fimmtudaginn 4.mars.
Með kveðju,
Stjórn Limsfélagsins.
12.02.2010 12:11
Limsfréttir
Þar sem það hefur verið óvenju snjólétt í vetur þá hefur þjálfunin á Lim gengið vel, því ekki væri hægt að þjálfa hann mikið ef það væri smá snjór á vegninum nema ryjða braut fyrir hann fyrst og helst setja rauðan dregil. Jóhann tamningarmaður er ánægður með hestinn, segist "vinna mikið með Liminn í hendi" þessa dagana (hmm...eru ekki konur þarna í sveitinni) og gangi þjálfunin bara út á það að Limurinn standi sig sem best þegar og ef hann verður sýndur í kynbótadómi í vor. Ekki er verið að taka Liminn út og sýna hann hverjum sem er, heldur er unnið eftir þjálfunarferli sem mikil leynd hvílir yfir svo að keppinautarnir nái ekki að nýta sér það líka. Þjálfunarferilð nefndist "tvöfaldur júkki með spíral" sem er það sama þjálfunarferli og notað var af handboltalandsliðinu okkar en þeir fengu þetta þjálfunarkerfi lánað hjá okkur og ekki var að spyrja að árangrinum á EM.
Limurinn verður næst sýndur meðlimum í vorferð félagsins þann 6. mars og verður það í síðasta sinn sem hann verður tekinn út áður en sigurhringurinn verður riðinn á kynbótabrautinni.
19.10.2009 19:23
Limur frá Leiðólfsstöðum slær í gegn
!

Hin árlega haustferð Limsfélagsins
sem farin var á Laugardag síðastliðin tókst með eindæmum vel og óhætt að segja eigendur og
velunnarar Lims frá Leiðólfsstöðum voru í 10.000 fetum eftir heimsóknina til Jóa og Theódóru að Neðra-seli
í Landssveit. Limurinn hefur verið þar í frumtamningu síðustu 6 vikurnar og fer svona ljómandi vel af
stað og óhætt að segja að þarna er stjarna á ferð. Hafa þau heiðurshjón
í Neðra-Seli greinilega
sinnt Limnum vel.
Dagurinn var í alla staði mjög
ánægulegur, byrjað var á heimsókn til Ella og Viðju í Langholti en þangað er alltaf gaman að koma ,margt
skoðað og mikið spjallað. Því næst fræddust Limsfélagar um bjór og ölgerð í Brugghúsinu
Ölvisholti og það leiddist engum og mikið smakkað.
Næsti viðkomustaður var Helgi Kanslari á Hellu en sárt
hungur var farið að gera vart við sig hjá hressum Limsfélögum og snæddu þeir pizzur og hamborgarar af bestu
gerð.
Þá var komið að því að hitta heimilisfólkið á Skeiðvöllum og tók þar á móti hópnum léttur og
kátur Sigurður Sæmundsson ásamt fríðu föruneyti og aðstaðan hreint út sagt glæsileg.
Limsfélagið
þakkar öllum sem gerðu þessa skemmtiferð mögulega og sérstaklega þeim sem
tóku á móti hópnum og gerðu vel við
okkur. Þess vegna getum við ekki látið hjá líða að nefna
rausnarlega rmóttökur hjá Limsfélaganum
Jónsa og konu hans Gullu sem oft er kennd við Skalla en þau tóku á móti
hópnum í glæsilegu sumarhúsi sínu sem gerði
mikla lukku í enda ferðar.
Undir
myndaalbúm eru nokkar myndir úr ferðini, eins
og sjá má á þessum myndum sem teknar voru á laugardag þá er mikið efni þarna á ferðini
og ljóst að gengisvísitala í Limshlutum á eftir að taka mikin kipp á næstu dögum og vikum og ekki er nú
félagsskapurinn síðri , Limsfélagar greinilega stuðboltar upp til
hópa.
Kær kveðja,
Stjórn Limsfélagsins.
08.10.2009 15:36
Haustferð Limsfélaga
Lagt verður af stað kl. 11:00 í rútu og komið heim um 18:00. Verð fyrir rútu og bjórverksmiðjuna er ca. 3.500 kr.
Vinsamlega látið vita með mætingu í síma 698-8370 eða senda tölvupóst á fakur@simnet.is fyrir miðvikudaginn 15. okt.
20.09.2009 12:50
Haustferð
Nánari dagskrá auglýst um mánaðarmótin sept.-okt.
09.09.2009 10:00
Limur í tamningu
Væntingavísitölur og hagtölur á mörkuðum tóku kipp í morgun því "Mafíosforingjanrir" tveir (Helgi og Garðar) fóru í gærkvöldi og tók út Liminn, þ.e. tamninguna á honum. Limur er búinn að vera í tamningu í heilar 3 vikur og fer hann vel af stað. Svo vel að Helgi falaði hann í smalamennskur í Dölunum, en þó vel væri boðið var ákveðið að láta hann vera á tamningastöðinni áfram næsta mánuðinn. Ef fram fer sem horfir þá er stefnt á að leyfa almenningnum að skoða gripinn í október - áður en honum verður sleppt í hagann.
Foringjunum leist vel á Liminn en þetta er allt spurning um reisingu og stinningu - á gangi. Dundað er í Limnum á hverjum degi og hækkar reisingin og stinningin eykst svo þetta lítur vel út eða eins og kerlingin sagði "Ef Limur verður stinnur og vel reistur þá verð ég ánægð."
Limur er einkar geðgóður og prúður í umgengni og svarar tamningunni vel - svo vel að við fórum fram á afslátt hjá tamningarmanninum en það verður betur rætt seinna undir fjórum bjórum.
Eitt gleymdist þó en við ætluðum að hafa með bikar til að æfa hann fyrir verðlaunaafhendinguna á Landsmótinu - en við gerum það bara næst og fáum Guðna Ágústsson til að æfa það með okkur svo það verði sem raunverulegast. Því ekki má Limur vera okkur til skammar í verðlaunaafhendingunni á Landsmótinu og vera hræddur við glasandi bikara eins og sumir hátt dæmdir stóðhestar hafa orðið.
Viðvörun!!! Ef foringjarnir reyna að kaupa fleiri hluti af ykkur þá er um innherjasvik að ræða því þeir vita meira en almennur hluthafi - svo ekki selja þeim ykkar hlut þó að þeir bjóði gull og græna skóga eða beiti sálfræðitækninni á ykkur.
Það sem okkur þótti einna flottast var hversu flottur taglburður var á Limma - verður sennilega með flottasta taglburðinn á landsmótinu og er það verðmætur eiginleiki í ræktunina.
20.08.2009 17:32
Sóldís stóð sig frábærlega
Hæfileika einkunn hennar er 8,31 og aðaleinkunn 8,19
18.06.2009 10:38
Limur í girðingu
Limur tekur á móti hryssum n.k.laugardag 20.júní í girðingu við Vetleifsholtsafleggjara í Rangárvallasýslu milli kl:15:00-18:00.
Nánari upplýsingar í síma.698-8370
27.05.2009 00:38
Hugarleikfimi
Notið nú ættfræðikunnáttuna og finnið út hversu oft.

26.05.2009 23:31
Fyrstu Limsafkvæmi fædd
Jarpskjótt merfolald,undan Kolskör frá Engihlíð og þar með sammæðra Vila frá Engihlíð,keppnishesti Viggu Matt.
Og rauðstjörnótt hestfolald,móðir Perla frá Glæsibæ.
Sjá nýjar myndir
05.05.2009 20:09
Fyrsta gleðikvöldið
Fyrsta gleðikvöld Limsfélagsins var haldið sl. föstudagskvöld, þann 1. maí.
Markmið félagsins er að halda reglulega slík kvöld sem einkennast skuli af gleði og jafnvel einnig af söng.
Fór það enda svo að kvöldið endurspeglaði fölskvalausa gleði Lima yfir augljósum hæfileikum folans og innihaldsríkum umræðum um þá.
Það var svo til að styrkja enn frekar trúna á folanum að sýnt var myndband af systur Lims, glæsihryssuna Sóldísi frá Leiðólfsstöðum, 6 vetra gæðingshryssu sem þekktur hrossaræktandi lýsti svo; fasmikil með háar og miklar hreyfingar, mjúk á tölti, skrefmikil á brokki og áreiðanlega alveg sprautuvökur líka. Ljóst var að menn fóru að stofna til félagsskapar til að fjármagna kaup á merinni.
Það kom einnig í ljós á fundinum að dæmi eru orðin um að menn hafi verið að selja hálfa hluti í Lim til að bjarga fjárhag heimilisins á krepputímum.
Það er ljóst að þetta kvöld lofar góðu um framhaldið og að nokkur skemmtan sé líkleg á komandi gleðikvöldum félagsins.
Næsta gleðikvöld er áformað næsta haust þegar við fögnum hæfileikum Lims að lokinni frumtamningu.
22.04.2009 12:39
Limshátíð
Þann 1. maí n.k. milli kl 21:00 - 23:00 verður haldin móttaka fyrir hluthafa í hinum bráðefnilega Lim frá Leiðólfsstöðum. Hátíðin verður haldin í höfuðvígi hestsins sem er anddyri reiðhallarinar í Víðidal. Þar verða afhent skírteini sem staðfesta eignarhluti í hestinum og farið almennt yfir stöðu mála.
Stefnt er að því að bjóða upp á veitingar gegn vægu gjaldi, að Limsfélagar geri sér dagamun og gleðjist saman. Hápunktur kvöldsins verður sennilega sýning systur Lims, 5 vetra hryssunni Sóldísi frá Leiðólfsstöðum sem er undan Huga frá Hafsteinsstöðum. Þar er víst mikið afkasta hross á ferð sem gefur tóninn um það sem koma skal hjá litla bróður.
Búið er að finna góða girðingu á Suðurlandi í sumar fyrir Liminn og er hluthöfum bent á að sækja um pláss á heimasíðuni limur.123.is sjá (sumarsæla) eða á netfangið sts@centrum.is Hóflegt þykir að 3ja vetra foli sinni u.þ.b. 30 hryssum yfir sumarið ef eftirspurn reynist umfram það verða dregnir út happadrættir. Öðrum en eigendum er ekki hægt að lofa plássi undir hestinn þar sem áhugi fyrir Limnum er mikil. Stjórnin hvetur þó áhugasama til að senda fyrirspurnir og reynt verður eins og kostur er að að verða við beiðnum.
Þar sem eitthvað vantaði upp á að netföng hluthafa skiluðu sér þegar listinn var gerður langar stjórnina að biðja alla hluthafa að senda póst með því netfangi og/eða símanúmeri sem þeir vilja að fylgi sínum hlut á fakur@simnet.is eða með SMS á númerið 698 8370.
13.04.2009 22:10
Limsfélagar athugið!
Limsfélagar athugið!
Limshátíð verður haldin föstudaginn 1.maí n.k. kl.21:00 í Reiðhöllinni Víðidal
