Tenglar
- Forleikur á Fjórðungsmóti Borgarnesi 2021
- Milljónameri
- Forleikur kynbótasýning Hellu 10.06.2020
- Forleikur Kynbótasýning á Hellu 2020
- Fákur
- Engispretta
- Þóroddsstaðir
- Glaumur frá Geirmundarstöðum
- Kokteill frá Geirmundarstöðum
- HrossVest
- Valtýr frá Sólheimum
- GLYMUR Í ÚTLÖNDUM
- Kveikssonur
- Hryllingsfélagið
- Vegagerðin
- Veðustofan
Eldra efni
- 2025
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2024
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2023
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2022
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2021
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2020
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2019
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2018
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2017
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2016
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2015
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2014
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2013
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2012
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2011
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2010
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2009
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
19.05.2011 09:06
Efstur, bestur, mestur eins og eigendurnir
Þetta er mynd af fyrsta en klárlega ekki síðasta verðlaunagrip sem Glymur Limur fékk á kynbótasýningunni í Víðidal. Glymur er með næst hæsta dóm sem stóðhestur í 5 vetra flokki á Íslandi í dag og farseðillinn á landsmótið verður innrammaður. Við viljum hvetja alla eigendur til að kaupa miða á landsmótið og nú þegar er búið að setja á laggirnar undirbúningsnefnd sem á að að sjá um skemmtiatriði á landsmótinu þegar Glymur Limur tekur við verðlaununum sínum. Jibbbbýý húrra.
Verðlaunin verða til að byrja með geymd á náttborðinu hjá Helga þangað til búið verður að smíða verðlaunaskápinn og kannski þurfum við að smíða sérstakt hús eins og Diddi undir allt verðlaunasafnið.
17.05.2011 17:21
Landsmótsfarinn Glymur frá Leiðólfsstöðum
Já sælllll
Sýningin hjá Sigga Matt og Glym tókst glæsilega og endaði klárinn í 8,24 í aðaleinkunn. Til hamingju allir aðdáendur klársins.
Aðaleinkunn: 8,24 |
Sköpulag: 8,28 |
Kostir: 8,21 |
Höfuð: 8,0 8) Vel opin augu Háls/herðar/bógar: 8,5 1) Reistur 5) Mjúkur 7) Háar herðar F) Fyllt kverk Bak og lend: 9,0 2) Breitt bak 3) Vöðvafyllt bak 8) Góð baklína Samræmi: 8,5 Fótagerð: 8,0 4) Öflugar sinar Réttleiki: 8,0 Hófar: 8,0 3) Efnisþykkir 8) Vel formaðir I) Slútandi hælar Prúðleiki: 7,5 |
Tölt: 8,5 2) Taktgott 3) Há fótlyfta Brokk: 8,5 1) Rúmt 4) Skrefmikið Skeið: 7,0 C) Fjórtaktað Stökk: 8,0 5) Takthreint Vilji og geðslag: 8,5 2) Ásækni 4) Þjálni Fegurð í reið: 8,5 4) Mikill fótaburður Fet: 8,5 3) Skrefmikið Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,5 |
17.05.2011 14:05
Glymur í dóm
Glymur Limur í byggingadóm.
Vorið er komið og grundirnar gróa og Glymur er kominn í dóm. Herdís, Jón og Gústi kynbótadómarar þurftu að setja upp sólgleraugun þegar stórstjarnan kom í salinn í kynbótadóm. Á hliðarlínunni voru Helgi, Dabbi Matt og Raggi Tomm og sperrrtu eyrun er dómarnir létu stóru tölurnar falla (vonandi niður á blaðið líka).
Glymur Limur er í feikna standi og ef allt gengur upp þá munum við eiga einn umtalaðasta stóðhesta landsins í kvöld. En ef það gengur ekki vel þá er það að sjálfssögðu dómurunum að kenna eða kuldanum því eins og allir karlmenn vita þá eru Limir ekki mikið fyrir að sýna sig í miklum kulda.
17.03.2011 12:47
Ótitlað
Fyrsta snjómót Limsfélagsins var haldið laguardaginn 12. mars. Ekki kom það neinum á óvart að Limur frá Leiðólfsstöðum átti glæsilega sýningu og rúllaði upp mótinu með glæsibrag. Góð byrjun á keppnisferli þessa glæsilega fola enda bárust tilboð í hann strax að móti loknu. (sjá fleiri myndir frá snjómótinu í myndaalbúmi)
10.03.2011 11:38
Limurinn í bæjarferð
Hátíð í bæ og Limurinn skrapp í bæjarferð. Tókum nokkrar myndir af kappanum (sjá fleiri myndir í myndaalbúmi)
27.02.2011 21:24
Ræktunarferð 5.mars 2011

Hin árlega hrossaræktunarferð kynbótanefndar Fáks og Limsfélagsin verður farin laugardaginn 5.mars.n.k.Lagt verður af stað frá Reiðhöllinn í Víðidal kl.9:30 og eru allir áhugasamir hrossaræktarunnendur velkomnir.Að venju eru bara skemmtilegir hrossaræktendur heimsóttir.
Hápunktur ferðarinnar er þegar Limurinn verður tekinn út.
Spurningin er hvort klárinn fari á váááááááááááááááááálista í kjölfarið.
Skráning í síma:6988370 (Helgi)fyrir 4.mars.(kostnaður við rútu o.fl.ca kr.3.999)

14.12.2010 23:26
Nú skal etið
Vegna væntanlegrar fjölgunar á næstu árum á frábærum reiðhestum og ræktunarhrossum undan Lim frá Leiðólfsstöðum hafa Limsfélagið og ræktunardeild Fáks ákveðið að skera niður þau hross sem ekki hafa hans gen í sér og boða því til:
Dagskrá auglýst síðar.
12.12.2010 22:16
Limur komin í hús
Hesturinn kemur vel undan hausti er í góðu standi og líklegur til afreka í vetur.
Eftir áramótin fer hann í sínar fyrri þjálfunarbúðir til hestahvíslarans Jóhanns Ragnarssonar.
31.10.2010 13:08
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Skoðið myndir á http://hakonraektun.123.is
24.05.2010 12:51
Enn eitt glæsifolaldið


Afkvæmi Lims á Erpsstöðum í Dölum,móðirin er vindskjótt en skráð jarpskjótt,folaldið er jarpskjótt .
Hvernig verður það á litinn?
14.05.2010 22:33
Afabetrungur?
Hæ
Glæsihryssan, hennar Karenar Lindar, Gná fra Króki, kastaði. rauðskjóttri hryssu í gærmorgun ,henni Skjöldu frá Skarði.
Dýralæknirinn hafði rétt fyrir sér er hann sónarskoðaði Gná, skömmu fyrir köstun ,að þarna væri að vænta fótarburðarapparati með góð gangskil ,mikið hæfileika hross.
Bóndi og hrossarækatandi í Saurbænum hafði það á orði að þarna kæmi sennilega heimsmeistari i fótaburði , svo mikil yrði hann að aðrir mættu skammast sín og loka sínar bykkjur í húsi, svo mikil yrði hann að allir stuðlar i kynbótadómum yrðu teknir niður svo pláss yrði fyrir Skjöldu frá Skarði í skala ráðunauta..
Álfur hvað!
Kv
HJK
Frá ritstjóra
Sendandi fréttar er beðinn um að afhenda gögn sem sanna mál hans.
08.05.2010 22:08
Fyrsta folaldið í ár
Sökum ofursnerpu dýrsins hefur ekki tekist að kyngreina né litgreina það en talið er að það sé skjótt og annaðhvort hestur eða meri.
07.05.2010 10:27
Limurinn heillar lýðinn
Limur er bráðefnilegur foli sem hefur safnað erfðavísum í vetur í kúlurnar sínar og er hann tilbúinn að leyfa hryssum eigendanna að koma og kynnast alvörur gæðinga erfðavísum. Þeir sem ætla að nota hann í sumar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við yfirliminn Helga múr í síma 698-8370.
Mýkt, fótaburður, litafegurð og lang ódýrast folatollurinn í ár. Fjölmennum með hryssur svo við getum hist og dáðst af þeim saman í komandi framtíð. Ætlunin er að hafa afkvæmasýningu á klárnum eftir rúmt ár og þar mun flottasta afkvæmið fá vegleg verðlaun s.s. peningaverðlaun, bjórkassa, wiský og verjur til margra ára.
29.04.2010 17:03
Limurinn tekinn út
Forystusauðir Limsfélagsins, flestir stjórnarmenn, fóru og skoðuðu Liminn hjá Jóhanni tamningamanni. Stefnan var tekinn á Gaddstaðaflati og settist kafteinn Siggi Svavars undir stýri, því bæði Garðar og Jón plömmi eru svo rólegir í tíðinni að við hefðum ekki náð fyrir mánaðarmót ef þeir hefðu keyrt. Keyrslan var slík að undirritaður hringdi í konuna sína og bað hana að hafa samband við tryggingafélagið og hækka líftrygginguna. En allir komust við heilu og höldu á Gaddstaðaflati, enda Siggi búinn að keyra svona formúluakstur í 30 ár og orðinn þaulvanur að þræða á milli hættulegra ökumanna sem keyra á löglegum hraða á þjóðvegunum okkar. Kristinn í Skarði eða einhverjir aðrir staðahaldarar hafa haft nasasjón af komu okkar Reykvíkinganna, því búið væri að taka veginn í sundur niður að Gaddstaðaflötunum en við vorum á amerískum torfærubíl og greinilegt að Siggi hefur einhverntíman áður keyrt utanvega (hmmm skildi umhverfisstofnun vita af því).
Limurinn var skoðaður í krók og kima, hefur þroskast töluvert og bætt á sig vöðvum. Því næst lagði Jóhann á gripinn og reið honum fyrir okkur á brautinni eða öllu heldur í sandkassanum, því brautin var laus í sér eins og vikurhrúga. En Limmi öslaði þetta af myndarskap, greip efnilega í skeiðið og verður jafnvel alhliða þó töltið verði hans sterkasta gangtegund. Hann er einkar geðgóður og á örugglega eftir að gefa frábæra dúllu reiðhesta sem öllum líkar við. Meira að segja Helgi múrari sagðist ætla að finna sér meri til að halda undir hann í sumar því hann þyrfti að eiga svona frábæran reiðhest, traustan og flöskufæran í ellinni.
Þar sem fjallað var um stjórn Limsfélagsins í Skýrslunni um hrunið og hún harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki nægilegt gegnsæi með Liminn. Á grunvelli þessarar gagnrýni var sú ákvörðun tekin af skilanefnd, sem var sett yfir stjórn Limsfélagsins, að gefa hluthöfum kost á að sjá gripinn á Stórsýningunni Fáks á laugardagskvöldið. Þar er fastlega búist við að Limurinn slái í gegn og aðsóknin verði mikil í hann í sumar. Helgi er búinn að finna girðingu fyrir hann í sumar og er hún í Hornvík á Ströndum. Hryssueigendur eru bara beðnir að kaupa aukatryggingu fyrir ísbjarnarárásum á hryssurnar sínar eða redda girðingu nær menningunni fyrir skærustu vonarstjörnu íslenskrar hrossaræktar. Nú ef svo ólíklega færi að hann slái ekki í gegn þá eru örugglega nokkrar girðingar lausar undir Eyjafjöllunum en þá eru hryssueigendur bara beðnir að koma með vel feitar hryssur og sækja þær fljótt aftur (ekki þarf að koma með tannbursta því nóg er af flúor á svæðinu).
Að endingu viljum við svo minna hluthafa og aðra að LÆRA eftirfarandi afsakanir og kasta fram ef svo ólíklega vill til að Limurinn verði ekki bestur á sýningunni:
*Hann er í hormónasjokki
*Hann hefur verið taminn samkvæmt Hólaaðferðum, blómstar því eftir 5 ár.
*Hann er góður heima á afleggjarnum
*Hann tók ekki lyfin sín í morgun (Jóhann er grunaður um að hafa tekið sjálfur öll stinningarlyfin sem Garðar skrifaði upp á svo Limur væri stinnur og flottur).
*Hann vissi ekki að hann ætti að vera góður núna (var það ekki á morgun?)
*Hann er uppalinn í Dölunum
*Hann fer fallega í haganum
*Hann er aðeins á fjórða vetur
*Hann er eðlilega járnaður
*Hann er flottur á fetinu
*HANS TÍMI MUN KOMA..................

12.03.2010 20:49
Vorferð 2010
|
|||||
Því næst var haldið á Hellu í síðbúinn hádegisverð á veitingastaðinn Árhús. Þar þáðu félagar góðar veitingar á kosta kjörum og var vel gert við hópnn. Þá var komið að því að renna í Landssveitina, nánar tiltekið í Neðra-Sel til Jóa og Theódóru, en þar er Limurinn í tamningu og þjálfun. Jói var svo flottur á því að hann lagði á upphitunarhest áður enn Limurinn var tekinn til kostanna og var eigenda hópurinn almennt ánægður með stöðuna á Limnum og alveg öruggt að hann verður til alls vís á sumri komanda. Því næst var haldið heim á leið þar sem menn þurftu að koma sér í rétta formið og mæta á ballið hjá Kvennadeild Fáks þar sem dansaðir voru indverskir dansar langt fram á nótt.
Stjórnir félagana þakka öllum sem tóku á móti hópnum og gerðu þessa ferð eins skemmtilega og raunin varð.
Sjáið fleiri myndir úr ferðinni í myndaalbúmi.
Kær kveðja
Stjórn Hrossaræktardeildar Fáks og Limsfélagið


