LIMSFÉLAGIÐ

Félagsskapur skemmtilegra hestamanna

Tenglar

Flettingar í dag: 79
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 274
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 597113
Samtals gestir: 59677
Tölur uppfærðar: 11.2.2026 04:51:24

Eldra efni

25.03.2012 21:43

Vorferð 2012

Ferð Limsfélaga um Suðurland 3. mars 2012.

 


Séð yfir hesthúsið á Króki - Margrétarhofi.

Description: Picture 005

Öll hönnun og frágangur er til fyrirmyndar.

Description: Picture 016

Reynir Örn Pálmason bústjóri

Description: Picture 012

Séð yfir reiðhöllina á Króki

 

 

Description: Picture 053

Feðgarnir Sigurður og Matthías með Guðmundi Ólafssyni

Description: Picture 046

Guðmundur Björgvinsson segir okkur frá starfseminni að Ingólfshvoli

Description: Picture 072

Maggi múr, Maggi rafvirki og Þórir Haraldsson

Description: Picture 058

Ketill Rökkvi, Tryggvi, Guðmundur og Helgi

Description: Picture 062

Guðmundur Ólafsson fer með kveðskap

Description: Picture 066

Gestgjafarnir að Ingólfshvoli, Guðmundur Björgvinsson og Eva Dyröy með Hrýmni frá Ósi

Description: Picture 067

Ekki skorti veitingar hjá þeim heiðurshjónum að Ingólfshvoli.

Description: Picture 068

Sigurþór og Guðmann

Description: Picture 069

Guðmundur Björgvinsson, vel merktur Líflandi. 

Description: Picture 081

Stjarna frá Stóra Hofi og Tóný braksó ásamt Hrímnir frá Ósi og Gummi Björgvins.

Description: Picture 094

Stjarna frá Stóra Hofi

Description: Picture 105

Description: Picture 083

Description: Picture 096

 

Description: Picture 102

Hrímnir frá Ósi.

 

Description: Picture 121

Eva Dyröy

Description: Picture 109

Maggi múr og Siggi Svavars.

Description: Picture 110

 

 

Description: Picture 114

Viking Gull ásamt Helga

Description: Picture 117

 

Description: Picture 120

Frændurnir Tryggvi Rafn og Sigurður.

Description: Picture 122

Kvistur frá Skagaströnd

Description: Picture 125

Fáfnir frá Hvolsvelli.  (Steingrímur Njálsson) 

Description: Picture 127

 

Description: Picture 138

Description: Picture 164

 

 

 

 

Description: Picture 151

Helgi og Tryggvi frá Dæli

Description: Picture 152

Rikki, Þór Gylfi og Húddi.

Description: Picture 157Piss,piss og pelamál

Description: Picture 158FVo

 

Description: Picture 159

Description: Picture 160

Bjarni Blóma, Guðmundur formaður og gestgjafarnir.

Description: Picture 070

 

10.03.2012 22:51

Um hverja er svo ort?

Um hvaða hesta er svo ort?

Vöðvastæltur,vilja snarpur
Varla skal nú melnum vægt.
Þegar skeiðar þessi garpur,
þykja aðrir fara hægt


Fasið villt og flugið hratt
fer sem ör af boga.
Hún er meira en geðið glatt,
gneistuð augun loga.




Svörin eru á heimasíðunni

02.03.2012 11:19

Limurinn er háreistur og tilbúinn

Í veðurblíðunni í gær var Glymur Limur tekinn út og viðraður. Nokkrar myndir voru teknar af kappanum og er ekki annað en hægt að segja að hann sé stinnur og tilbúinn í stór átök í vor. Þeir sem hafa fengið undan honum vilja meira svo það er um að gera að nota Glym Lim í sumar því hróður hans berst víða og erlendir kauphéðnar bíða átekta eftir því að versla gripinn.emoticon





28.02.2012 21:01

Vorferð

Hin árlega hrossaræktunarferð kynbótanefndar Fáks og Limsfélagsins verður farin laugardaginn 3.mars.n.k.

Lagt verður af stað frá Reiðhöllinni í Víðidal kl.9:00 og eru allir áhugasamir hrossaræktarunnendur velkomnir.

Dagkráinn er eftirfarandi :

Margrétarhof (Krókur)  Reynir Örn Pálmason sýnir okkur búið, kynnir hestakostinn og ræktun.

Dalbær í Flóa (heimsóknartími) Glaumur frá Geirmundarstöðum tekin út ef veður leyfir.

Matarhlé.

Ölfushöllin Ingólfshvoli Guðmundur Björgvinsson sýnir okkur kynbótahross sem eru í þjálfun hjá honum.


Það er mikilvægt að skráning berist fyrir 1 .mars.svo hægt sé að panta rétta stærð af langferðabíl þátttökugjald er 3.000 kr per mann.

Skráning :   glymur@visir.is eða í síma:6988370 (Helgi)    

12.02.2012 14:00

Vorferð Limsfélagsins 3.mars 2012


Sæli í Bakkkoti að kristna Limsverja enda brunuðu þeir allir með hryssur undir Sælulínu í fyrra.

Hin árlega vorferð Limsfélagsins verður farin frá Reiðhöllinni í Víðidal kl. 9:00 laugardaginn 3.mars.n.k. og nokkrir vel valdir og skemmtilegir hrossaræktendur heimsóttir, kíkt í bauk, sungið, hlegið og flott hross skoðuð.

Skrá sig verður fyrir 2.mars.n.k.
Skráning fer fram í síma:698-8370 eða á glymur@visir.is.


Þó  slípist hestur og slitni gjörð,
slettunum ekki kvíddu,
hugsaðu hvorki um himin  né jörð,
haltu þér fast og ríddu
                                (Þórður á Strjúgi)



Ferðasaga 2011

Strandarhjáleiga/Eystra-Fróðholt

 

Strandarhjáleiga

Í byrjun mars 2011 var farin velheppnuð vísindaferð á vegum Limsfélagsins og kynbótarnefndar Fáks. Stefnan var tekin á Hvolsvöll til  Þormars Andréssonar og fjölskyldu,ræktunarbús árins 2010 og var ekki að spyrja að stórfjölskyldan tók höfðinglega á móti 40 manna flota með frábærum veitingum ,skreytt flatbrauð og öl og farið var ítarlega yfir ræktun og starfsemi fjölskyldunnar .

Starfsstöðin (hesthúsið) yfirfarin undir leiðsögn Þormars og sona hans Elvars og Heiðars ásamt tamningakonunni Hennu Siren . Að lokum voru okkur sýndir 3 frábærir gæðingar fjölskyldunnar, Ás frá Strandarhjáleigu, Gígja frá Strandarhjáleigu og Oktavía frá Feti. Og var þeim öllum að sjálfsögðu riðið með miklum slætti.

 

Sæluþáttur ,neinneneinei Sælaþáttur

Út úr þéttbýlinu  héldum við í Suður Landeyjar,neineinei Vestur-Landeyjar,nákvæmlega í Eystra-Fróðholt til Fíu og Sæla,sú fregn hafði borist meðal  ferðalanga að meistari  Daníel Jónsson myndi mæta á svæðið með tilvonandi stjörnur búsins.  Ársæll tók á móti gestum í dyrunum með hressilegu viðmóti  og engu var líkara en ferðaflotinn væri kominn á stóra sviðið ,þvílík var aksjónin strax.

Folöld spiklandi fram og og aftur og gæðingum  riðið um hlaðið. Bóndinn var strax komin í fluggír,krafðist þess að fólk fengi sér veitingar í fyrstu stíu um leið og hann byrjaði að snara fyrsta tryppið til sýningar. Tekin voru út 3-4 folöld,hvert á fætur öðru og rekin með tilþrifum um hlaðið ,vakti sértaka athygli jarpt merfolald undan ofurhryssunni Glímu frá Bakkakoti og Stála frá Kjarri  og að því loknu var farið að huga að gæðingareið

Daníel lagði á Óðin og Sæli dró fram mánaðartamin 3v. fola,snillingin Arion ,báðir að sjálfsögðu Sæs synir.

Og leyndi sér ekki að þar voru miklir snillingar á ferð bæði menn og hestar.

Stórsýningunni lauk á því að lagt var á stóðhestinn Penna og hryssuna Spá sem er alsystir Glímu og Arions.

Ef ég væri ríkur ...........diridiridiridiridiridi diri diri  dí

 

Limsverjarar og Fákarar þakka kærlega fyrir sig.

(HS)



21.01.2012 11:14

Glaumur frá Geirmundarstöðum


Eftir handsal  á  sveifluprinsinum Glaumi frá Geirmundarstöðum þurfti  að finna gripnum nýja fósturforeldra, upp kom að heiðurshjónin í Dalbæ í Flóa væru mjög góður kostur. Eftir viku viðdvöl í  Víðidalnum var það úr að folinn var sendur í Dalbæ. Þegar Má var þakkað fyrir uppeldið,heyrðist þá bara hm ha, viljið þið ekki koma austur og líta á folann Var það úr að nokkrir fótafimir karlmenn(Helgi múr,Garðar geð,Siggi Matt)ásamt einum kúski  fóru austur, klárir í  að snara örfrískan gripinn  til  að síðuþukla hann. Þegar Gemsanum var lagt að hólfinu sást úr 30 metra fjarlægð að ekki þurfti að kanna holdarfar folans frekar. Svo stinnur og gljáandi var hann.

Var það samdóma álit sendlanna að betra fóstur væri vart fundið og héldu mjög sáttir í borgina aftur.

HS

14.01.2012 17:09

Stórhátíð Limsfélagsins

Hin árlega hrossakjöts veisla Limsfélagsins og kynbóta nefndar Fáks var haldin laugardaginn 7.jan í félagsheimili Fáks í Víðidal.

Veislan lukkaðist vel undir frábærri handleiðslu Sigga Svavars skemmtanastjóra Limsfélagsins.Góður rómur var gerður að matnum enda vel framreiddur af Jóni Helga og hans frábæra starfsfólki og kunnum við þeim bestu þakkir.
Eftir borðhald verðlaunaði Garðar Sigursteinsson fyrir hönd kynbótanefndar Fáks hæst dæmdu kynbótahross ræktuð af Fáksmönnum í boði Líflands með dyggri aðstoð Guðmundar Birkis Þorkellssonar,sem fór yfir eiginleika og ættir hrossa og eigenda.

Ekki þýddi bara að hampa Fáksverjum,Limsverjar urðu að vera með svo að Siggi verðlaunaði mesta ræktunargúru Limsverja,Hilmar á Skarði og fékk hann stórglæsileg verðlaun fyrir efnilegasta fylið( sjá síðuna frá 14.05.2010). Því næst mætti í salinn heiðursgestur kvöldsins Glymur frá Leiðólfsstöðum ásamt Sigga Matt og Ragga Tomm og voru að sjálfsögðu heiðraðir með jurtum.Næstur á svið var kynntur hinn kyngimagnaði Guðni Ágústsson hestamálaráðherra allra tíma,óhætt er að segja að hann fór hamförum í púltinu, menn sáu fyrir sér, flestir þá á þriðja bauk drauma forseta .Leynigestur kom á vegum Kobba Jóns,Kalli frændi ( Örvarson) eftirherma og tók nokkrar þjóðþekktar fígúrur,að lokum ákváðu forsprakkar Limsfélagsins að gera Kidda Huga og Guðna Ágústsson að hluthöfum númer 61 og 62 í Glaumi frá Geirmundarstöðum og þáðu þeir kumpánar hnossið með glampandi augum verðandi heimsmeistara.
Limsfélagið þakkar öllum þeim sem að lögðu hátíðinni lið,kærar þakkir fyrir frábært kvöld.

-H.S.

p.s.
Nýjar myndir í myndaalbúmi.

06.01.2012 20:24

Hrossakjötsveisla Limsfélagsins

Vegna þráðláts oðróms um að uppselt sé á hrossakjötsveislu Limsfélagsins,skal áréttað að enn eru nokkrir miðar óseldir.

11.10.2011 09:08

G l a u m u r

Glaumur hafði stutt stopp í bænum til að venja hann við menninguna áður en hann færi austur fyrir fjall og kynntist alvöru sunnlenskri rigningu.  Nokkrar myndir voru teknar af kappanum svo Helgi yfirmúrari gæti prentað þær út svo hann þekkti folann næsta vor. Það er frekar slæmt fyrir svona félagsskap að  hafa svona óhestglöggan umsjónarmann á svona dýrgrip enda er það þess vegna sem hann heldur alltaf undir skjótta stóðhesta sjálfur því þá eru meiri líkur á að hann þekki beljuskjóttu hestana sína sjálfur. Við skulum vona að hann þekki Glaum á stjörnunni (eftir mynd) svo hann komi ekki með eitthvert flókatrippi í staðinn næstar vor er hann verður kynntur í Reiðhöllinni.


Búið að æfa uppstillinguna fyrir kynbótadóm. Glaumur er svo hálslangur að það mun ekki þýða að hafa einhvern venulegan hobbita-kynbótaknapa á honum, þeir myndu ekki sjá hvert þeir væru að fara því reisingin er svo gífurlega J


Við skulum vona að Þáttur gamli í Kirkjubæ komi ekki upp í honum í reið og höfuðburðurinn verði svona!!!


Glaumur lýtur nokkuð vel út miðað við veturgamalt trippi og verður gaman að sjá hvernig hann þroskast næstu árin. Búið er að selja alla 60 hlutina og gekk það mjög vel og nú er bara að vona að hlutabréfavísitalan taki jafn vel við sér og væntingavísitala eigenda en eins og er þá er mikill munur þar á milli, en það stendur til bóta :)


 Yfirhestahaldarinn með pískinn góða, eins gott að halda sig á mottunni.

28.09.2011 17:43

Glaumur í bæjarferð



Glaumur á hágengu tölti - ójárnaður svo það verður aldeilis sveifla á karli er hann kemst á járn í fyllingu tímas.

Glaumur hefur hafið sína heimsreisu og hafði fyrstu viðdvöl í Reykjavík í vikunni. Ekki fékk hann þó að hvíla sig því snarlega var honum kipp út í gerði og látin dansa fyrir stjórnarmeðlimi, bæði á tölti og brokki. Létt er yfir kalli og von til þess að hann þroskist vel í vetur og þá verður haldin stór sýning á honum í vor fyrir alla sem vilja og kannski líka þá sem vilja ekki.
Síðan verður dregið út hverjir fá að nota hann næsta vor en fyrst þarf að redda girðingu fyrir kappan svo ef einhver vill fá afnot þá er gott að redda fyrst girðingu.
Glaumur er strax viljugur, léttur í hreyfingum og hreyfir sig á Hólamátann, þ.e. hvelfdur makki, lækkar sig að aftan og spyrnir sér fram með frjálsar og fimar hreyfingar. Notar aðallega brokk en bregður fyrir sig hýruspori.
Stjórnarmaður var byrjaður að semja vísu um kappann en það vantar að botna hana en ákveðið er að hafa vísusamkeppni og verða bestu vísurnar gefnar út í bók um jólin og þá er jólagjöfinni handa konunni reddað þetta árið.

Tvær leirburðavísur hnutu fram á varir stjórnarmanna í dag en þetta er að sjálfssögðu bara hnoð og það geta örugglega einhverjir gert betur og sent okkur vísur.
 Þessa á eftir að botna

Glaumur verður eigendum sínum mikill gleðigjafi,

enda strax gammvakur lista gæðingur.

Seinna verður hann Sleipnisbikarhafi

???????

 

Eigendur verða þó þyrstir að bíða

en munu háar skýjaborgir smíða,

því fyrst þarf Glaumur að ríða

ljótu merinni þeirra og fyrir það líða.



Náttfari frá Ytra-Dalsgerði

15.09.2011 10:58

Verðandi heimsmeistarefni, Glaumur frá Geirmundarstöðum

Kæru Limsverjar, Fáksmenn og aðrir kátir hestamenn

Þar sem Glymur frá Leiðólfsstöðum stóð sig vel í vor og er núna hæst dæmdi Álfssonurinn í heiminum þá er mikill hugur að fara í útrás og stækka félagið. Þó að félagsmenn hafi verið duglegir við að stækka á þverveginn J þá viljum við frekar stækka félagið með því að kaupa nýtt stóðhestefni og fjölga félögum þar sem mikil ásókn hefur verið í að komast í félagsskapinn. Njósnari hennar hátignar, James Bond Íslands þegar kemur að hestaheiminum, fréttir allt fljótlega þó að í múrverki sé og heyrir frekar dapurlega, þá fór það ekki framhjá honum að verðandi heimsmeistaraefni væri falt. Gerður var leiðangur norður í land þar sem hann fékk hraðskreiðasta sendibílstjórann á svæðinu í lið með sér til að vera á undan öllum hinum sem ætluðu að klófesta heimsmeistarasoninn.  Ekki þótti ráðlegt að yfirgefa Skagafjörðinn nema handsala kaupin og reyna svo að sannfæra þá sem hafa ekki séð hann að annað eins stóðhestefni hafi ekki sést í langan tíma.

Um er að ræða son heimsmeistarans Spuna frá Vesturkoti sem vann hug og hjörtu, já og veski hrossaræktenda enda jaðraði við slagsmálum eftir landsmótið við það að koma hryssum undir hann. Spuni sló í gegn á Landsmótinu enda einkar flinkur alhliða hestur. Móðir Glaums er sýnd en ekki hátt dæmd, um 7.50 en hún var aðeins 3 mánaða taminn þegar hún var sýnd. Hún hefur þegar gefið mjög góðan 1. verðlauna stóðhest, Kokteil frá Geirmundastöðum og hefur hann líka sannað sig á keppnisvellinum, verið í úrslitum á Landsmóti í unglingaflokki og farið vel yfir sjö í tölti. (hér er slóð á myndband af Kokteil  http://www.hofapressan.is/watch_video.php?v=b27fe8656879ce8

Móðir Glaums er undan Hrafnssyninum Boða frá Kjarnholtum en móðir hans er nánskyld Glókollu frá Kjarnholtum. Svo eru hestar  eins og Þáttur 722 frá Kirkjubæ, Leiri 708 frá Reyni og Léttir 600 frá Vík einnig í móðurlegg hennar.

Félagið verður samsett af 60 hlutum til að byrja með og er öllum skemmtilegum hrossaræktaráhugamönnum er gefinn kostur á að vera með til að efla hrossarækt í landinu,,, en fyrstir koma, fyrstir fá.  Þeir sem ætla að verða með í Glaum verða að senda póst á fakur@fakur.is sem fyrst því búast má við því að margir skrái sig strax fyrir hlut og við þurfum að borga hestinn í næstu viku svo allir verða að leggja inn til að tryggja hlutinn sinn. Annars missum við hestinn.

Glaumur er ræktaður af sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni og mun hann koma og halda uppi stuðinu á árshátíðum Glaums þegar hann verður búinn að slá í gegn.

Hér meðfylgjandi eru nokkrar myndir af Glaum en hann er framfallegur, léttbyggður og vel stór. Glaumur er með mjúkan háls og sýnir fallegar hreyfingar og virðist vera efni í flottan hest.


20.08.2011 14:39

Sónarskoðun

Athugið
Næstkomandi föstudag 26.08.2011 verður sónarskoðað út úr girðingu hjá Glym.
Hryssueigendur verið viðbúin því að sækja hryssurnar þann dag.

22.05.2011 10:25

Ótitlað

Glymur frá Leiðólfsstöðum verður til afnota fyrir hryssur meðlima Limsfélagsins.
Stefnumótastaður Faxaból í Reykjavík til mánaðarmóta maí-júní 2011.
Nánari uppplýsingar í s:698 8370
Eftir Landsmót verður girðingahald gæðingsins á Torfastöðim í Biskupstungum.
Tekið verður á móti hryssum þriðjudagskvöldið 5. júlí á milli kl. 20:00 - 21:00 Borga verður girðingargjaldið um leið og sleppt er í girðingu kr. 20.000 (í peningum).
Sóldís frá Leiðólfsstöðum