LIMSFÉLAGIÐ

Félagsskapur skemmtilegra hestamanna

Tenglar

Flettingar í dag: 79
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 274
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 597113
Samtals gestir: 59677
Tölur uppfærðar: 11.2.2026 04:51:24

Eldra efni

10.09.2013 11:37

Glaumsferð 12. okt. nk.

Gaumur hinn fagri er farinn að stíga sín fyrstu spor í átt að alheimsfrægð og eru hluthafar beðnir að gera sig klára til flugtaks, því farin verður ferð til að skoða kappann þann 12. okt. og endað á Herrakvöldi Fáks.

16.08.2013 20:42

Ótitlað



Móðirin Hörpudís frá Kjarnholtum






Kolfinnur Spunasonur

09.06.2013 18:10

Fyrsta folald undan Glaum 2013


Fjögurra daga gamalt merfolald undan Glaum frá Geirmundarstöðum og Furu frá Sauðafelli.
Eigandi Hörður Haraldsson Sauðafelli í Dölum


07.06.2013 18:20

Glymur

Glymur fer í girðingu við Stokkseyri  helgina 15.-16.júní n.k.
Nokkur pláss ennþá laus

Nánari upplýsingar i síma :698-8370


Glaumur fer væntanlega í girðingu helgina 15.-16.júní n.k.
Nokkur pláss laus

Nánari upplýsingar í síma :698-8370

03.06.2013 10:20

Limurinn slær í gegn á Gæðingamóti Fáks


Glymur Limur og Siggi Matt slógu í gegn á Gæðingamóti Fáks í B-flokkki gæðinga. Þeir félagar áttu kraftmikla sýningu þar sem Limurinn skálmaði stinnur og reisturemoticon .......ekki amalegt það.
Glymur fór síðan í úrslit með Teit sem stýrimann en þar sem þau voru á laugardegi var hann ekki alveg í stuði enda ekki vinnudagur hjá prinsum og honum finnst hann eftir þessa frammistöðu að vera bara að sinna hryssum hluthafa því hann er hæst dæmda Álfssyni í heiminum og þó víða væri leitað.

Allir að panta undir klárinn því það myndast örugglega langur biðlisti. emoticon

01.06.2013 19:48

Ótitlað

Fyrsta folald undan Glym svo vitað sé árið 2013.Eigandi Páll Briem

19.05.2013 10:58

ATHUGIÐ

Þau ykkar sem hafa áhuga á að halda merum undir Glym í sumar
 vinsamlega hafið samband í síma :698 8370 sem allra fyrst.

25.04.2013 21:39

Gott málefni


Limsfélagar hafa lengi haft hug á að leggja góðu málefni lið. Tækifærið gafst þegar listamaðurinn Bjarni Þór frá Akranesi, gaf félaginu málverk af stóðhestinum Glym frá Leiðólfsstöðum. Málverkið var boðið upp á árlegum hátíðarkvöldverði, sem haldin var í ársbyrjun og slegið hæstbjóðanda, Þóri Haraldssyni  á 180.000 kr. og rennur upphæðin óskipt til Dropans.

Limsfélagið er gleðifélag hestamanna sem heldur utan um eignarhald á stóðhestinn Glym frá Leiðólfsstöðum og verðandi stjörnuna Glaum frá Geirmundarstöðum. www.limur.123.is

 

Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki hefur starfað síðan 1995. Höfuðmarkmið félagsins er að stuðla að velferð barna og unglinga sem hafa greinst með sykursýki, hvar sem þau búa á landinu. Stærsta verkefni Dropans er að bjóða upp á árlegar sumarbúðir fyrir börn og unglinga með sykursýki. Læknar og hjúkrunarfræðingar frá göngudeild sykursjúkra á Barnaspítala Hringsins vinna að sumarbúðunum með Dropanum og starfa í þeim ásamt öðru frábæru starfsfólki. Sumarbúðirnar eru afar gagnlegar fyrir börnin og unglingana, þar læra þau hvert af öðru, deila sameignlegri reynslu, fá stuðning fagfólks, öðlast sjálfstæði og öryggi í meðhöndlun síns sjúkdóms.

 

Undanfarið hefur Dropinn staðið í stórræðum við gerð fræðslumyndbanda sem eru öllum aðgengileg á netinu. Fjölskyldan, vinir, starfsfólk skóla og aðrir í nærumhverfi einstaklingsins þurfa ávallt að vera meðvituð um sjúkdóminn og rétt viðbrögð við ýmsu sem upp kann að koma. Í erli dagsins vilja ýmis mikilvæg atriði gleymast og því er gott að geta leitað sér upplýsinga á skjótan og þægilegan hátt. 

Styrkurinn er því kærkomin og á eftir að nýtast félaginu vel á næstu vikum og mánuðum. www.dropinn.is

 

 Mynd:

Glymur sjálfur, knapi er Bjarki Freyr Arngrímsson

 

Frá Dropanum:

Jón Sólmundarson, formaður

Arnar Freyr Jónsson

Björn Ólafsson, stjórnarmaður

Hekla Lind Björnsdóttir

 

Hæstbjóðandi og eigandi málverksins:

Þórir Haraldsson

 

Frá Limsfélaginu :

Sigurður Svavarsson, skemmtanastjóri

 

Á málverkinu halda þær:

Hekla Dröfn Sigurðardóttir og Ylfa Guðrún Svafarsdóttir

25.02.2013 20:42

Vorferð 2013

Ræktunarferð Fáks og Limsverja

LimsveerjarHin árlega og stórskemmtilega hrossaræktarvísindaferð Fáksverja og Limsverja verður farin nk. laugardag (2. mars). Farið verður frá Reiðhöllinni kl. 10:00 í rútu (fargjaldið kr. 4.000) og tvö öflug hrossaræktarbú á Suðurlandi verða heimsótt, enda áttu þau margan gæðinginn á síðasta landsmóti ásamt því að vera höfðingjar heim að sækja.

Þeir sem ætla í ferðina eru beðnir að hafa samband við Helga í síma 698-8370 eða senda póst á fakur@fakur.is fyrir kl. 12:00 á föstudag.

22.02.2013 16:32

Ókrýndur sigurvegari :)


Fyrsta folaldið undan Lim sem vitað er um að ætli sér að vinna folaldasýningu, mætir í kvöld á folaldasýningu hjá Herði í Mosfellsbæ og stefnir á 1.sætið.



08.01.2013 22:34

Þrettándagleði 2013 afstaðin


Þá er Þrettándagleði Limsfélagsins og kynbótanefndar Fáks afstaðin.

Geiri réttur bauð gesti velkomna með sinum kunnu töktum og skenkti  brennivínsstaup í leiðinni.

Andi Jóns Helga sveif yfir og að sjálfsögðu var stóll frátekinn fyrir snillinginn. Eftir vel  heppnuð viðskipti  arftakans Silla Ægis og Sigurðar Eiríksstaðavíkings,nostraði hann  svo við  matinn að hrossakjöts Simmi Ólafs lagði ekki í að smakka en ekki hvarflaði að nokkrum hrossakjötssérfræðingi  sem það gerði  að gera nokkrar athugasemdir. Eftir að Brokkkórinn undir styrkri stjórn Magga Kjartans  hafði sungið nokkur lög boðaði eilífðartöffarinn Siggi Svavars ,sveitadrenginn Guðmund Birki Þorkelsson fyrstan í pontu. Guðmundur Birkir sagði meðal annars að Flóadrengurinn Guðni Ágústsson hefði aldrei séð tær fossagil og læki sem kórinn söng um,hann þekkti bara flóaveituna,grugguga leka fram hjá Brúnastöðum.

Því næst veitti Garðar biskup kynbótanefndar,  verðlaun fyrir  hæst dæmdu kynbótahross í öllum flokkum,  ræktuð af Fáksverjum. Að sjálfsögðu tengdi Guðmundur Birkir skyldleika hrossanna við Óðu Rauðku eins og við átti,svona til mótvægis við  Snældu Sigurðar frá Brún,hvað annað?

Brokkórinn hélt sínum íðilfögru röddum heitum og seldi almanök til styrktar Berlínarför sinni 2013, á milli laga.

Næstur var Bjarni á Þóroddsstöðum ræðumaður kvöldsins með sína þéttu rödd. Bjarni fór aðeins í gegnum þá trú föðurs síns Þorkels Bjarnasonar heitins  að atgervi íslenska gæðingsins skuli vera :

Léttstígur,viljugur ,rúmur og flugvakur gæðingur,á traustum fótum að sjálfsögðu. Birkir skyldi það vera Nói?

Bjarni kom líka inná skoðun sína á ræktun klárhrossa sem hann kallaði skammvinnan gróða fítus og þarf það engum að koma á óvart.

Ekki gleymdist Flosa þáttur Ólafssonar sem fararstjóra í hestaferðum yfir þýskum kerlingum fyrir Þorkel í mörg sumur.

Einhverju sinni lagði Flosi upp í ferð á Laugarvatni á Krumma sem Keli hafði arfleitt hann af. Klárinn hafði verði Kela erfiður á yngri árum.Ansans klárinn tók upp á því að láta eins og vitleysingur með stórleikarann,jú kallinn hafði brókað sig í reiðstakk ráðunautarins.

Í haustferð Limsfélgsins í Borgarfjörðinn fékk Birkir það snilldarhugboð að eigin sögn að bjóða Bjarna Þór Bjarnasyni listmálara að mæta með málverk á þrettándagleðina og viti menn snllingurinn þakkaði fyrir sig með glæsimálverki af Glymi í farteskinu sem var boðið upp og fékk Dropinn félag sykursjúkra barna andvirðið. Einnig málaði Bjarni Þór portrett sem  Limsfélagið afhenti Sigurði Matthíassyni til eignar.

Að sjálfsögðu kann Límsfélagið að meta góða skemmtun og heiðraði Guðna Ágústsson og Laugarvatnsbræður . Brúnastaðastrákurinn leyfði Laugarvatnsdrengnum ekki að eiga síðasta orð kvöldsins- Hverju svarar Birkir að ári????

Hafi allir viðstaddir þökk fyrir góða skemmtun og starfsfólk kvöldsins fá alveg sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf.

Sjá myndir frá kvöldinu í myndaalbúmi síðunnar.

H.S.

08.12.2012 22:28

Haustferð 2012

Laugardagsmorgun þ.24.nóv.s.l.,fljúgjandi hálka í borginni og varla stætt .  En þá er bara að sanda braut af bílastæðinu inn að  Reiðhallaranddyri.  Hinn hundtryggi  Eggert einkabílstjóri  Limsfélagsins er mættur á rútunni  á slaginu.  Og þá er að hasta okkur uppá Skaga að vísitera fyrsta tamningardýrið undan Limnum.

Hersteinn heitir prinsinn sem fær þann heiður að verða fyrstur afkvæma Lims  í tamningu svo vitað sé. Hann var í húsi ásamt föður sínum sínum.  Eitthvað hafði farist fyrir að sinna folanum þær tvær vikur sem húsvistin var orðinn,.  Frumraun folans undir hnakk  fór fram kvöldið áður en tamningamaðurinn kallar ekki allt ömmu sína og lét  vaða út á götu.  Folinn tók til fótanna með stæl á mýktarsveiflubrokki  og stakk hjálparhestinn af eins  og upprennandi gæðingur.

Eins og sannir gestgjafar sýndu Skagamenn  Limsverjum einn annan alvöru gæðing í reið. Ingibergur lagði á 1v.stóðhestinn  Ægi frá Efri-Hrepp sem var járnaður í tilefni dagsins.  Ægir fór létt með tvo skeiðspretti enda með 9,5 fyrir skeið.

Að  þessari gullmola sýningu lokinni var haldið niður í bæ í  gallery Bjarna Þórs Bjarnasonar,þar sem við tók önnur gullaldarsýning en nú á striga ásamt léttum veitingum.

Með stjörnur í augum skunduðum við í Pizzu og öl,og haft er á orði  á Skaganum að ekki hafi sést eins á götum bæjarins  í langan tíma eins myndarlegir  menn, þá aðallega á þvervegin.

Ræs  í rútu og haldið til Jakobs Sigurðssonar  í Steinsholt .  Eins og vænta mátti var þar fullt hús gæðinga og gæðingsefna og fór Kobbi yfir  sviðið af sinni alkunnu hógværð. Þegar sest var í kaffistofuna varð úr svo fjölbreytt sögustund að menn gleymdu sér fram í myrkur svo íþróttaknapinn 2012 slapp við að fara í hnakkinn.

Hafi allir ferðafélagar og gestgjafar þökk fyrir léttan og ánægjulegan  dag.

En það er af Limi að segja að hann er á leið í geymslu og í létt trimm í Borgarfirðinum fram eftir vetri

Handrit (ekki skuldlaust) HS

  

07.11.2012 20:20

Haustferð 2012


Nú er fyrsti árgangur undan Glym (Lim) komin á tamingaaldur.  Af því tilefni verður farin túr að kíkja á sýnishorn af framtíðareðalhrossum landsins  laugardaginn 24.nóv. n.k. Komið verður við á tveimur hrossabúum ,skoðuð gæðahross og heimsótt skemmtilegt fólk.

 Farið verður frá Reiðhöllinni Víðidal kl.10:00 árdegis.
Áætlaður heimkomutími á milli 16 og 17 sama dag.

Skráning í síma 698-8370 fyrir föstudaginn 23.nóv .n.k.